|
|
26.07.2007 15:32:50 / Valgerdur
Já ég er komin með aðgang að allt of mörgum bloggum! Ég er alveg
hætt að skrifa hérna inn þar sem ég er farin að skrifa inn á tvær
aðrar bloggsíður.
www.gylturnar.bloggar.is
www.kindere.blogspot.com
Endilega kíkið á þessar síður ef ykkur leiðist!
Annars er bara allt gott að frétta af mér, stelpurnar sem við
kynntumst í Frakklandi eru í heimsókn og er helgin plönuð út í
eitt! Reynum að gera sem mest með þeim!
»
19.05.2007 14:35:20 / Valgerdur
Ég er semsé búin í prófum og er það alveg æðisleg tilfinning. Og
ég er líka byrjuð að vinna og lýst mér bara vel á. Allt voða pró..
komin með dagbók, póstfang merkt tandri, sér lykilorð inn í
bókunarkerfið þeirra... 
Soldið mikil tilbreyting miðað við t.d. Hrafnistu...
En já hef svosem frá litlu að segja, gekk bara vel í
prófunum, og er bara farin að njóta þess að vera í sumarfríi frá
skóla!
Björg er að koma heima eftir rúmar 2 vikur... get ekki beðið!
Það sama kvöld ætlum við stelpurnar að kíkja út að borða og svo
auðvitað á djammið!
Svo er hún Silvía mín líka að koma heim, verður gaman að hitta á
hana og heyra alla fyllerísvitleysuna sem hún hefur lent í, í
danaveldi..
Þannig að það er nóg að gerast hjá manni...
»
26.04.2007 11:38:10 / Valgerdur
MEÐ NÝJU
DRIVE-IN HRAÐBÖNKUNUM GETUR ÞÚ TEKIÐ ÚT PENINGA ÁN ÞESS AÐ
ÞURFA AÐ FARA ÚT ÚR BÍLNUM ÞÍNUM. LESTU LEIÐBEININGARNAR SEM
PASSA VIÐ ÞITT KYN OG LEGÐU Á MINNIÐ SVO
ÞÚ MUNIR ÞÆR ÞEGAR ÞÚ ÆTLAR AÐ NOTA NÝJA
HRAÐBANKANN.
LEIÐBEININGAR
FYRIR
KARLMENN: 1.
Aktu að hraðbankanum.
2. Skrúfaðu niður
hliðarrúðuna.
3. Settu kortið í hraðbankann
og sláðu inn leyninúmerið þitt.
4. Sláðu inn upphæðina sem þú
vilt taka út.
5. Taktu kortið, peningana og
kvittunina.
6. Skrúfaðu upp rúðuna.
7. Aktu í burtu.
LEIÐBEININGAR FYRIR
KONUR: 1.
Aktu að hraðbankanum.
2. Bakkaðu bílnum svo að
hliðarrúðan sé við hraðbankann.
3. Settu bílinn í gang
aftur.
4. Skrúfaðu niður
hliðarrúðuna.
5. Finndu nú veskið þitt og
tæmdu úr því innihaldið í farþegasætið og finndu
kortið þitt.
6. Finndu nú snyrtidótið þitt
og athugaðu hvort að andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.
7. Reyndu að setja kortið þitt
í hraðbankann.
8. Opnaðu bílhurðina svo að þú
náir betur.
9. Settu kortið í
hraðbankann.
10. Snúðu kortinu rétt.
11. Leitaðu nú að dagatalinu
þínu í veskinu hjá þér, og lestu leyninúmerið sem þú
skrifaðir innan á kápuna á
dagatalinu.
12. Sláðu inn leyninúmerið.
13. Ýttu á "LEIÐRÉTTA" og sláðu
inn rétt leyninúmer.
14. Sláðu inn upphæðina sem þú
vilt taka út.
15. Athugaðu nú aftur hvort
andlitið sé OK í baksýnisspeglinum.
16. Taktu peningana og
minnismiðann.
17. Tæmdu aftur úr veskinu þínu
og finndu seðlaveskið þitt, settu
peningana í það.
18. Settu minnismiðann í
tékkaheftið.
19. Athugaðu andlitið
aftur.
20. Keyrðu tvo metra áfram.
21. Bakkaðu aftur að
hraðbankanum.
22. Taktu kortið þitt.
23. Tæmdu veskið þitt og finndu
hulstrið af kortinu og settu kortið þar.
24. Athugaðu andlitið.
25. Settu bílinn nú í gang
aftur ! Aktu frá hraðbankanum.
26. Keyrðu nokkra
kílómetra.
27. TAKTU BÍLINN ÚR
HANDBREMSU !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
»
13.04.2007 13:42:15 / Valgerdur
Ég ákvað að skrifa eina stutta færslu þar sem það er orðið
svolítið langt síðan ég rita eitthvað hér síðast. Svo er
einbeitingin við lærdóminn heldur ekki nógu góð, þannig að maður
gerir næstum allt annað en að læra
Það er annars bara allt gott að frétta af mér. Fór til Danmerkur
yfir páskana með næstum allri móðurfjölskyldu minni, 11 manns. Við
gistum á gistiheimili semheitir La Villa, rekið af íslenskum hjónum
og er staðsett í Amager. Mjög stutt frá miðbæ Kaupmannahafnar.
Ástæðan fyrir því að ég er að skrifa um það er aðalega vegna þess
hversu rosalega óánægð við vorum með þetta gistiheimili. EF skoðuð
er heimasíða þeirra þá eru sýndar alveg rosalega fínar myndir
http://www.lavilla.dk/ Svona
æðislegt var það alls ekki. Ég, Salka, pabbi og mamma fengum
svítuna eins og þau kalla það, það herbergi væri svosem ásættanlegt
herbergi fyrir 2 en alls ekki 4. Við Salka sváfum á þessum sófa sem
er á myndinni. Ég vaknaði strax fyrsta morgunin með bit á kálfanum,
og svo fleiri bit næstu morgna á eftir.
Það urðu allir frekar rauðflekkóttir í framan.. líklegast
miglusveppur eða eitthvað í húsinu! Svo var svo hrikalegt loft
þarna, varla hægt að sofa á næturnar. Konan sem rak þetta benti
okkur á að setja viftu í gang sem stóð þarna á gólfinu, þannig að
við ákváðum að prófa það, en nei viftan var með svo mikil læti að
ómögulegt var að sofna!
Svo næstsíðasta daginn okkar var rænt umslagi frá afa með
peningum í inn í hans herbergi.
ÞAnnig að ég mæli alls ekki með þessum stað...!!
Annars var ferðin mjög fín, skemmtum okkur öll mjög vel!
Ýmisleg óvænt atvik komu upp...
Á morgun æltum ég Kristjana, Dísa og Birgitta að hittast á
kaffihúsi og hlakka ég til þess,orðið langt síðan að við hittumst
allar. Alveg kominn tími!!
»
13.03.2007 18:03:58 / Valgerdur
já það er farið að styttast í vorprófin... enda er mín farin að
vera stressuð.. samt geri ég ekkert í því..
Á föstudaginn kemur verður síðasta vísindaferð núverandi
stjórnar í Kaupþing og á eftir verður einhver keppni á milli
verkfræðinga og hagfræðinga (held ég). Svo er Bjarni að fara að
halda upp á 22 ára afmælið sitt og Emil að spila á Grandrokk..
þannig að það er nóg að gera..
Svo verðum við að fara að byggja brú á næstu dögum. Það er semsé
verkefni í burðarþolsfræði að byggja ´brú úr balsavið.. keppni á
milli nemenda, og til að gera þetta ennþá meira spennandi þá ákváðu
tveir strákar í hópnum að efla til auka keppnis, það er bjór
keppni. Allir sem vilja vera með setja kippu af bjór í veðmálið og
sá/þau sem gera sterkustu brúna miðað við þyngd hennar,
vinnur/vinna allan bjórinn. Eins og er, eru 5 kassar og ein kippa í
pottinum.. þannig að það er til mikils að vinna 
Annars fer líka að styttast í páskana.. og þá fer ég aftur til
Kaupmannahafnar.. verður voða gaman, djamm og djús... 
»
26.02.2007 21:14:11 / Valgerdur
Já þá er ég komin heim úr helgarferð til Köben.
Það var alveg rosalega gott að komast svona í burtu frá náminu
og alveg æðislegt að hitta hana Björgu..
Ferðalagið var meira ævintýrið.. ferðin út varð aðeins lengri en
eðlilegt er vegna ósýnilegrar snjókomu í Köben. Vorum ekki lent
fyrr en rúmlega 12 að miðnætti sem var um 5 tímum seinna en ætlað
var. Þannig að það varð ekki mikið úr fimmtudagskvöldinu hjá okkur
Björgu, en í staðin djömmuðum við til hálf 7 á
föstudagskvöldið.
Svo verslaði ég aðeins.. og annars vorum við bara að spjalla og
hafa það kósý.. hittum Danna og Bryndísi og síðan vinkonur hennar
Bjargar í skólanum... svaka stuð!
Litlu frændur hennar Bjargar algjörar krúsídúllur..
»
11.02.2007 18:01:32 / Valgerdur
Þá eru 11 dagar í það að ég fari til Kaupmannahafnar að
heimsækja hana Björgu... get ekki beðið
Helgin sem er að líða er heldur betur búin að vera viðburðarrík,
á föstudag var fyrta árs partý.. og að þessu sinni var það fyrir
alla sem eru á fyrsta ári og vorum við með Rokkþema.. Þetta var
alveg rosalega skemmtileg, ég hef sjaldan verið eins ógeðsleg...
fíla mig ekki alveg sem rokkara! Var reyndar kannski svolítið ýkt..
búin að lita mig rauða í olnbogaliðunum, þannig að það leit út
fyrir að ég væri búin að vera að sprauta mig bara allan daginn! Í
partýinu gerðist ég líka svo djörf og setti eye-liner á alla
strákana, frekar fyndið að fara með þeim öllum í bæinn með
eye-liner!
Svo var í gær Krobbahittingur. Það er við sem vorum í Krogerup
hittumst og rifjuðum upp góðar stundir.. var rosalega skrítið en í
leið skemmtilegt að vera með öllum hópnum aftur. Bjargar var nú
samt saknað!
Ég er búin að setja inn myndir frá helginni á
myndasíðuna...
»
30.01.2007 08:28:03 / Valgerdur
Að panta flugmiða er ekkert smá stressandi...
Ég sat semsé allan gærdaginn í því að kaupa flugmiða.. einn til
Bjargar eftir mánuð og einn til Englands í sumar. Og ég
var í lok dags ekkert smá spennt og sátt við kaupin... svo gerist
það skemmtilega atvik að ég verð andvaka... svona inn á milli þess
sem ég reyndi að finna einhverja aðferð til að sofna þá fer ég og
kíki á e-mailið mitt... þá kemur þar fram að kortinu sem ég notaði
til að kaupa miðan til Bjargar hafi verið hafnað... þannig að ég
fer strax inn á icelandair síðuna þar sem ég ætlaði að drífa í því
að endurtaka þessi kaup. En viti menn þá er verðið búið að hækka um
7000 kr.
Ég náttla alveg miður mín... því peningarnir vaxa sko ekki á
trjánum á mínum bæ. 
En svo sit ég hérna núna í tölvunum í VRII eldsnemma að morgni
(eftir aðeins 3 tíma svefn) og það lýtur allt út fyrir það að ég sé
bara að fara að kaupa þennan farmiða með uppáhalds flugfélaginu
mínu Icelandexpress....
Ég fer allavega ekki að fresta þessari ferð, þar sem ég hef ekki
verið svona spennt fyrir neinu í svo langan tíma... og það er bara
besta tilfinning í heimi.
Hlakka til að koma í heimsókn til þín Björg.
»
28.01.2007 16:54:10 / Valgerdur
Þá er orðið dáldið langt síðan ég skrifaði hérna síðast, en ég
lofaði henni Björgu um daginn að í dag (sunnudag) skyldi ég skrifa
eitthvað á bloggið mitt og setja inn myndir á myndasíðuna mína. Það
er nú ekki mikið í fréttum hjá mér... Skólinn náttla alltaf mjög
tímafrekur, en ég gerði nú samt gott úr þessari helgi. Fór í stutta
heimsókn til Helgu á fimmtudagskvöldið, síðan á föstudag þá var
skólinn heldur betur langur, vorum að gera tilraun til klukkan 6
þannig að um leið og ég var búin þar fórum við Sólveig á Viktor og
fengum okkur einn bjór, síðan hélt hún Dísa skvís partý um kvöldið.
Áður en ég fór þangað skrapp ég út á nes að ná í Tryggva og
Kristjönu í verkfræðingapartý... og vá hvað sumir voru hellaðir!!
Ákveðnir aðilar töluðu um fátt annað um kvöldið en það að hafa
unnið break keppni!! En allavega, það var svaka stemning hjá henni
Dísu, það er orðið svo sjaldan sem við hópurinn hittumst. Síðan í
gærkveldi hélt ég partý fyrir verkfræðingahópinn, og síðan enduðum
við öll niðrí bæ. Ég þorði síðan ekki að labba ein heim þannig að
ég ákvað að fara bara til afa, þar sem Maren ein af stelpunum í
verkfræðinni var að fara bara í næstu götu við Bragagötu. Afa
greyinu brá svo mikið þegar ég kom inn að hann var farinn að
seilast eftir einhverju barefli... hehe Jæja.. en ég ætla allavega
að setja LOKSINS inn einhverjar myndir á myndasíðuna mína þannig að
endilega kíkjið þangað
»
27.10.2006 20:04:32 / Valgerdur
+15°C
Fólk á Spáni notar kuldaúlpur og þykka vettlinga. Íslendingar
liggja í sólbaði.
+10°C Frakkar reyna af vanmætti að fá kyndinguna í gang.
Íslendingar planta blómum í garðana sína.
+5°C
Bílar á Ítalíu neita að fara í gang.
Íslendingar fara að gamni sínu í bíltúr á Saab druslunni.
0°C
Eimað vatn frýs.
Vatnið í Hvítá verður aðeins þykkara.
-5°C
Fólkið í Californíu frýs næstum til dauða.
Íslendingarnir grilla í síðasta sinn áður en veturinn skellur á.
-10°C
Bretar byrja að kynda húsin sín.
Íslendingar byrja að nota langerma boli.
-20°C
Götusalar byrja að flýja frá Mallorca.
Íslendingar enda miðsumarshátíðina. Haustið er gengið í garð!
-30°C
Grikkir deyja úr kulda og hverfa af yfirborði jarðar.
Íslendingar hætta að þurrka þvott úti.
-40°C
París byrjar að gefa eftir kuldanum.
Íslendingar standa í biðröð við pylsuvagnana.
-50°C
Ísbirnirnir byrja að flykkjast burt frá Norðurpólnum.
Íslenska landhelgisgæslan frestar björgunaræfingum, í von eftir
alvöru vetrarveðri.
-60°C
Mývatn frýs.
Íslendingar leigja sér spólu og halda sig inni við.
-70°C
Jólasveinninn heldur í suðurátt.
Íslendingarnir verða pirraðir því þeir geta ekki geymt brennivínið
sitt úti.
Íslenska landhelgisgæslan setur í gang björgunaræfingar.
-183°C
Örverur í mat lifa ekki af.
Íslenskar kýr kvarta yfir handköldum bændum.
-273°C
Öll atóm staðnæmast vegna kulda!
Íslendingar byrja að tala um að það sé kalt úti.
-300°C
Helvíti frýs!
Ísland vinnur Eurovision!
»
17.10.2006 21:36:23 / Valgerdur
Vildi bara láta vita að allt væri í lagi með mig...þó ég sé ekki
búin að skrifa í há og herrans tíð... Hef svosum ekkert að segja
bara á fullu að læra undir eðlisfræðipróf...
»
12.09.2006 16:03:31 / Valgerdur
Já, ég er ekki búin að skrifa á þónokkurn tíma...
Brjálað að gera í skólanum en ég kann bara rosalega vel við mig,
það var nýnemagrill síðasta föstudag og var það mjög
skemmtilegt.
Svo á held ég að vera einhver vísindaferð á föstudag, sem við
meigum loksins fara í ....
Nicola vinkona kemur í heimsókn til mín á fimmtudag í næstu viku
og er ég þá líka búin að ákveða það að hafa afmælið mitt bara þá
helgi. Þannig að ég verð með partý heima hjá mér í nýju íbúðinni á
laugardeginum 23.september eða tæpri viku áður en ég á afmæli.
»
27.08.2006 11:02:46 / Valgerdur
Þá erum við systur komnar með íbúðina okkar í Miðtúni. Í gær
(laugardag) þá fengum við hana. Því miður var samt eitt herbergið
svo viðbjóðslegt, að ég varð að mála það. Þannig að alveg til 2 í
nótt var ég að mála, og núna er ég aftur á leið þangað til að gera
aðra umferð. Ég var svona lengi að þessu vegna þess að foreldrar
mínir voru á skralli í gær og alltaf að hringja og biðja okkur að
sækja sig og skutla sér og ég veit ekki hvað, en þegar við komum á
staðinn þá voru þau sko alls ekki tilbúin til að fara. Þannig að ég
held að þau hafi endað með að labba úr Hafnafirðinum til
Kópavogs.
Síðan ákvað ég líka að mála fataskápinn sem er í herberginu og
tók þá þónokkurn tíma.
Annars kom Björg til mín í gær að skoða íbúðina og til að
kveðja. Skrítið að segja bless við hana, svona eftir að vera með
henni "allar" stundir í heilt ár. Hennar verður saknað 
Svo byrjar skólinn á morgunn, maður er heldur betur farinn að
hlakka til, en auðvitað er líka smá kvíði.
»
12.08.2006 17:51:45 / Valgerdur
Ég er loksins búin að setja inn myndirnar frá NY inn á
myndasíðuna mína... kannski ef ég nenni á næstu dögum, þá set ég
líka einhverjar frá sumrinu!
Það löbbuðu að mér tveir franskir gaurar áðan á gaypride. Og
annar af þeim spurði mig á íslensku hvort ég hafi ekki verið í
Montpellier og hitt bróður sinn, sem var með honum, á djamminu og
síðan tala við sig í síman. Hehehe, þannig að gaurinn mundi ennþá
eftir mér og var þarna í heimsókn hjá bróðir sínum sem býr hérna á
Íslandi. Mega fyndið...
»
09.08.2006 11:57:01 / Valgerdur
Ég gleymdi alltaf að skrifa það hér að við Salka systir erum
komnar með leiguíbúð. Fórum að skoða hana fyrir dálitlu síðan og
ákváðum bara strax að taka hana, þar sem við nennum ekki að vera að
leyta okkur að annari, og þessi var bara rosalega fín á sanngjörnu
verði miðað við hvernig markaðurinn er í dag. Þetta er þriggja
herbergja íbúð, en þar sem eitt herbergið er frekar lítið ætlum við
bara að sleppa því að hafa actual stofu, heldur bara vera með
sitthvort stóra herbergið. En að sjálfsögðu verðum við svo bara
báðar með sófa eða eitthvað inni hjá okkur til að hafa svona
aðstöðu til að bjóða gestum.
Við fáum íbúðina 26.ágúst en byrjum að leigja hana 1.sept.
Þannig að við höfum þarna nokkra innflutningsdaga að
kostnaðarlausu.
Svo eru bara allir velkomnir í heimsókn, hvenær sem er. Svo
framarlega að við séum heima við hehe
Það er svo líka ákveðið að ég ætla til Vestmannaeyja á næsta
ári, eða allavega ekki að húka í höfuðborginni!!
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
|